Friday, June 06, 2008

þessi saga verður sögð í næstu síkópásu!

skömmustulegur skammtaði hann skammyrðum í skemmda og sköllótta skömmina sína...



...glöggir lesendur lesi stórskemmtilega Stígamótasögu úr þessu aðrir ... take a hike!


I say no more!


kv Toni Takmörk

Friday, May 23, 2008

jiiiiii!

Seiiiiii seiiiiiiiii seiiiiiiiiii!

Sveiattan þér Antoine Hrannar að hafa ekki ritað á þetta drasl fyrr!

Sorry ... IVE BEEN BUSY!

já sælir lesendur góðir!

Þá er BA lokasýningin búinn. Ég mun ekki oftar sýna í Rose Bruford...skrýtin tilfinning að vera búinn með allt það verklega...og er nú bara BA ritgerðin eftir.

Sýningin fór fram úr öllum mínum björtusu vonum. Ég eiginlega skil ekki alveg hvernig stóð á því þar sem ég bjóst hreinlega við að fá taugabilun og kvíðakast á sviði.En nei svo fór nú sem betur fer ekki. Þó svo að þetta hafi verið drullu erfitt ... að standa þarnda einn og sviði og leika 4 mismunandi karektara,hafa svo 30 sek tl að hlaupa baksviðs og skipta um búning og so on. En þetta hafðist ... og það heldur betur.

BAC (Batttersea Arts Center) sem er eitt af stærri leikhúsunum hérna úti sendir nefnd á hverju vori sem fer um allt Bretland í stærstu leiklstarskólana sem sér svo sýningar hjá 3. árs leiklistarnemum (útskriftarnemum). Seinasta föstudag var ég boðaður á fund þar sem mér var tilkynnt að ég eða ss verkið mitt hefði verið tilnefnt til sýningar í leikhúsinu. Ég er því kominn á "short list" sem er víst mjög gott:)

Svo er bara að bíða að sjá ... en ég ætla ekki að fara að gera mér einhverjar vonir. Ég er bara ansi stoltur að hafa fengið tilnefningu:)

En hérna eru nokkar myndir af sýningunni (tekið á æfingu) :
















kv Toni Testamenti

Wednesday, April 30, 2008

KAST

VERÐ UTAN ÞJÓNUSTUSVÆÐIS MEÐ ALLAR RÁSIR UPPTEKNAR...
FRAM Á FÖSTUDAG!!!

óskið mér góðs gengis í loka sýningunni minn ... soloverkinu mínu! Arg sem ég hef fengið martraðir útaf á hverri nóttu síðustu 3 ár!
Kveikið á kerti fyrir mig á föstudaginn kl 11 (10 á íslenskum tíma) og fleytið því á Tjörnina.

Kv

Toni Tekurþetta !

ps ....EÐA VINSAMLEGA REYNIÐ SÍÐAR!

Wednesday, April 23, 2008

R.I.P.


Ástkær Antoine Fons datt hryllilega í það og lést aðfaranótt laugardags á líknardeild fjórðungssjúkrahúss Bíldudalshrepps. Kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hans er bent á neyðarsjóð Stígamóta og AA samtakanna.

Börn, barnabörn, barnabarnabörn og Barbapabbi.


Vegna hryggilegs stuðnings vina minna í drykkjuátakinu svokallaða þá hef ég dottið í það 14 sinnum síðan í færslunni hér á undan !

SKÍÍÍÍTABISSNESSSSSSSSSS!

SJÁST!

Toni Taprekstur

Saturday, April 12, 2008

We don´t need another hero!

Kæru vinir nær og fjær ... þó aðalega fjær!

Eftir að hafa setið í bíó seinasta sunnudagskveld og fengið ''köllun skapara alls'' í formi taugalosts og oföndunar þá hef ég ákveðið, eftir mikla yfervegun og íhugun að ''cut back'' í drykkjarsiðum mínum þá er varða þanín vökva er inniheldur etanól.

Ég reyndi á þennan nýja sið minn hér í Lundúnarborg í gærkvöld þar sem kærir félagar mínir voru hvað allir undir áhrifum Bakkusar Þá var hvað mesta táp og fjör á mér og vildi ég ólmur halda dansskemmtuninni áfram þó svo ég súpti aðeins af vatni einu saman allt kveldið. Ég var s.s. skemmtilegur ! já sei sei og sveiattan segja kannski sumir en auðvitað er þetta bara tímabundin prófun eða þar til ég kem heim í sumar svo örvæntið ei kæru vinir.

Tony the Pony will return elfdur og öflugur!



Kær kveðja

Toni Toppform

Wednesday, April 09, 2008

Þér vil ég þakka!

Þá er eitt svæsnasta pjjjjássssss-kafrí sem ég hef upplifað á enda!

Tók eitt spassakast svona rétt í endann til að toppa allt og nú segi ég OVER AND OUT!


Kv Toni Tilfinningatæpi

Wednesday, March 26, 2008

listin er sem fjölnotaður túrtappi Helgu Möllers á djörfum sunnudegi!

hvernig er að... er einhver tilbúinn að græða í mig leg úr persneskum ketti svo ég komist í katteignarfrí og þar af að leiðandi í Kastljós? Það má alveg misheppnast...er bara alveg uppiskroppa með hugmyndir til að skara frammúr í fáránleika artífartíleikans sem virðist viðhafast hér á landi.



kv

Toni Tabú

Wednesday, March 19, 2008

EKKI MISSA AF VIÐBURÐI ÁRSINS!

athugið!athugið!

Toni TakeOneTakeTwo kær Íslandsvinur kemur aftur til landsins, fimtudaginn 20.mars í boði Iceland Air og Kiss FM!!!

Að því tilefni er þér og þínum boðið í kistulagningu aðfaranótt laugardags milli 7-9 í portsundi Q bars!

Ekki missa af kistulagningu ársins 2008!


(í samstarfi við AA samtökin, Geðhjálp og Stígamót)

Thursday, March 13, 2008

ég er ömurleg manneskja sem á sér ekki viðureisnar von!

var á labbi í göngum skólans í dag...geri það oft ef ég mæti kannski of snemma á æfingu og enginn sem ég þekki er nálægur... bara til að þykjast ver að gera eitthvað.Þykist líka oft vera að tala í símann um geðveikt skemmtilegt eða senda gervi sms...þannig lít ég líka út fyrir að vera kátari og athyglisverðari en ég í raun og veru er .

Hvað sem öðru líður þá sé ég hvar einn af yfirkennurum mínum nálgast. Manneskja sem mér líkar kannski ekkert allra best við. Ég ákvað að ef þessi ákveðni kennarinn myndi stoppa og tala eitthva við mig þá myndi ég taka hörðu týpuna á þetta. En ég vildi ekki vera bara eitthva að labba og líta út sem misheppnaður slæpingi og duglaus maður svo ég tók á það ráð að þykjast vera að tala í símann... á ÍSLENSKU.

Viti menn!

Kennarinn stoppar fyrir framan mig....svona fer svo fram ''samtalið'' okkar:

K:''hey antoine, how are you doing''

A:(er enn í símanum (á íslenku))''uuu..Siggi (frumleikinn í fyrirrúmi) ...hérna nenniru aðeins að bíða...það er hérna kominn algjör FÁBJÁNI sem að kennir mér, sem vill tala við mig og hann sér greinilega ekki að ég er í símanum!!!(var auðvitað að taka hörðu týpuna á þetta svo ég blótaði honum í sand og ösku í símann...á íslensku ...við ekki neinn)

K: How did the meeting with Monique go?

A: (heldur símanum aðeins frá andlitinu, samt með grettu í smettinu eins og hann megi greinilega ekki vera að þessu...leit líkast til meira út eins og ég væri með malaríu og þunnlífi á lokastigi!)''...uuu... it went fine...*hóst ASNI!!hóst*''(Veit ekki hví ég hóstaði meðan ég sagði formælinguna þar sem með maðurinn er klárlega ekki af íslensku bergi brotinn)

K:I did´nt get that sorry

A:''It went fine!!!'' (hreyti ég út úr mér eins og vanærð og illa siðuð gelgja sem komst ekki inn á busaballið á Broadway sökum fáklæðnaðar og almennrar heimsku)


(áður en síminn minn hringir þá víbrar hann snögglega áður en hann loks svo hringir...Í þessu beinskeitta en abstrakta samtali okkar finn ég hvar símin fer að víbra sem þýðir að innan skamms mun hann hringja og það má auðvitað alls ekki gerast þar sem ég á að vera að tala við hann SIGGA! og því þykist ég missa farsímann úr greipum mér og vona að batteríið muni detta út og stöðva þar með hringingun sem myndi valda mér mikilli vansæmt og vanlíðan en hvelvítis síminn fellur hinsvegartil jarðar með þeim afleiðingum að fronturinn á símanum fer einungis af...svo byrjar hann að hringja!)


K:(meðan ég í einhverjum satanískum djöfulsmóð reyni að yfirgnæfa hávaðasama hringinguna með ýmis konar kroppahljóðum og hósti)'' I´ll let you to it since you seem quite busy!''


Þannig fór nú það

það marg borgar sig að þjálfa ómjúku manngerðina örlítið áður maður leggst í svona stórar framkvæmdir!

Over and Out

Toni Taugabilun

Monday, March 10, 2008

Tímabundin, torskilinn tíðateppa...

vaknaði 5 min. fyrir tíma í dag!

Fór í einn svartan sokk og einn bleikan og var svo lúinn á líkama og sál að ég tróð bara reimunum ofan í strigaskónna og hljóp út : í lausum skóm,gatslittnum joggingbuxum og alltof víðum ''Vínbúðin'' bol af systur ömmu minnar. Þegar út var komið sá ég að allt var farið til fjandans til...risavaxinntré á hlið,gamlar konur á leið í glæsibæ liggjandi dauðar í pollum og illalyktandi kassabörn á lausagangi... það hafði víst verið einhver vindhraði um nóttina sem mælst hafði á ljóshraða, sá alversti verðurofsi í skammtímaminni Englanddrottningar! En sem betur fer þá hafði hann gengið niður er ég átti leið mína í skólann...en ''eftirmálin'' lét ekki á sér standa.

Þarna húkti ég á einhverri umferðareyju frá Tjernóbíl hliðiná einhverjum álíka ófríðum 13 ára gömlum úthverfishórum í bleikum joggingölum með 4 stykki óþarfabörn í Leikbæjarkerrum...öll í ljótum fötum í yfirstærð. ''Skítur'' hugsaði ég, ''ætlar þetta heimska umferðarljós ekki að gefa mér grænt á lífið?!'' Um leið og ég segi þetta skiptist úr rauðu yfir í ....grænt...hefði maður haldið en nei! Yfir í gult svo aftur rautt. Ég, eins og ég sagði var guðdómlega nývaknaður og hleip 3 skref útá götu en þegar ég sé tveggja hæða almenningsvagninn nálgast mig óðfluga þá geri ég mér grein fyrir hva sé að gerast. Eitthva ógeðis Tinu Turner baul kemur úr iðrum mínum og ég ákveð að nú sé að hrökkva eða stökkva í orðsins fyllstu merkingu. STÖKKVA! En í einhverjum flækingi þá hafði...og svipað hefur komið fyrir mig svo oft áður... önnur reimin komist einhvernvegin upp úr skónum mínum og ég stíg auðvitað á hana og lendi í án gríns með túlan í drullupolli. Ég eins og svooo oft áður vildi allllsss ekki feisa lífið á coolinu svo í stað þess að þurka framan úr mér saurinn og brosa framan í vindinn (því jú einu vitnin af þessu atviki var bara eitt sett af illa vöxnum útjaðrarskækjum á leiðinni að selja misheppnuð börn sín á tombólu!) heldur byrja að hlaupa, á svipinn eins og ekkert hafi gerst og ég sé nýbúinn að átta mig að ég sé ógeðslega seinn á fund með manni sem ætlar að láta mig fá lifrina sína FRÍKEYPIS + kippu af bjór.... Auðvitað hefur þá hin reimin í þessum hamagangi náð að losa sig úr hinum fótbúnaðinum og ég auðvitað aftur hrassa og dett en með meiri stæl í þetta skiptið því núna næ ég að lenda í sætinu í næsta strætóskýli....þar sem ég svo sat næstu 20 min. með skömmina í brókinni, i-Poddann í hlustum,aur og drullu í restinni og lítið tár í auga!


Komst svo að því að ég ruglaði saman dögum í stundaskránni.


Over and Out

Toni Togstreita

Thursday, February 28, 2008

Eg framdi mord!!!

Eg framdi andlegt sjalfsmord i kaffeteriu skolans um kl 13:42!

Eg fekk leyfi til ad skjotast a klostid thvi eg var aaaaalveg ad pissa a mig (rettara sagt ur endatharmi) og fljotasta leidin var ad hlaupa i gegnum kaffiteriuna en um leid og eg setti fot thangad inn tha gerdi eg mer grein fyrir ad engan morgun mat eg hafdi snaett thann morguninn. Svo eg akvad ad trodast i rodina og kaupa mer snakkpoka sem eg myndi svo i huggulegheitum jappla a klostinu med einn pipandi. En thegar eg hafdi verid i rodinni i um 17 sek. og an thess ad eg gerdi mer fyrir thvi tha prumpa eg ... ekki svona ''prrruuuummp'' eda ''parrrapamp'' prumpi heldur svona heitu,blautu ''pfffffhhhhhhhhhhh'' prumpi sem hefur dvalid i einhverju utskotstharma fra faedingu! That blossar svo olysanlega thrusuvond lykt ad starfsfolk motuneitissins er farid ad stinga nefjum saman og lita i mina att.
Eg i einhverju gedveikisprumpukasti tek upp disk sem er fullur af avoxtum og segi frekar hatt og snjalld yfir rodina og naerstadda med nyju ''eg er alltof glada svertingjamamman fra Alabama og eg aetla ad utbua fyrir thig limonadi sugar!'' roddinni minni''iijjjju I think those fruits are going baaaaad...they suuureee smell like it...one might thing one of these bananas just farted..hahahahaha !''svo hlog eg trylltum Alabama hlatri medan eg bakkadi haegt i att ad klostinu, med avaxtardiskinn i fanginu med Eurovisionbros grettu i fesinu.

Audvitad var eg svo vinsamlegast bedinn um ad skila avaxtardisknum thegar eg kom af klostinu.


Kaer kvedja

Toni Taska

Tuesday, January 15, 2008

ÉG MUN DAFNA!

andskotinn hvað ég hata ykkur...eða hvað?

ég villist alltaf hingað inn og les þá eilítið yfir seinustu skrif.Svo eins og alltaf eftir að ég hef skoðað þessi hryggilegu skrif mín, gert mér enn og aftur grein fyrir því að ég sé álíka mikill ''penni'' og amma Hemma Gunns og ælt upp í loftið svo ælan lendi aftur framan í mér (því miðað við þetta blogg á ég svo sannarlega ekkert betra skilið) þá horfi ég á snöruna sem hangir niður úr lofinu í herberginu mínu,snöruna sem ég er alltaf á barmi þess að fara að nota eftir lestur þessa blogs en svo skítur ávallt niður þessari ömurlegu pælingu í minn niðurgangsfulla heila að ''kannski leynist þarna..einhverstaðar þarna útí í myrkrinu..ein lítil vesæl sál sem ekki á í sig né á og að eina lífsblóm hennar sé lestur skrifa minna...(þó bæði séu innantóm sem magi 5 ára gamals Keníubarns og stórkostlega þreytandi)''

en svo var ég búinn að lofa mér ''hingað og ekki lengra Hr. Fons'', þegar ég var búinn að heita sjálfum mér því að aldrei myndi ég letra skrifstafi í tölvuformi á þessa nöturlegu síðu framar! En svo ... já elsku ÞÚ einmanna sál sem lest þetta ... þú sem veist ekki betur ...já SVO las ég blog síðu eins míns besta vinar, Tyrfings Tyrfingssonar og þá fjörgaðit eitthvað innan í mér. Mér fannst sem allt þunnlíf plús annar úrgangur læki úr öllum mínum vitum ... ÉG BLOGG FRELSAÐIST! ! !

kæru vinir

njótið vel

www.tyrfingur.bloggar.is

kv Toni Tertuspaði