Monday, May 29, 2006

djamm...bíddu...ösp..bíddu..texti...bíddu!

En og aftur vaknaði ég í litla rúminu mínu og enn og aftur vaknaði ég þunnur. Var að klára 5 daga stanslaust skrall. Búinn að fara til Brighton og svo bara rosalegar stuðnætur í London og eftir allt þetta djamm þá hef ég ákveðið að setja stuðsprotann á hilluna næstu 2 vikur en fara í staðinn að drullast til að læra þennan texta. Hann á að vera á hreinu fyrir morgundaginn og ég er alveg að læra hann en ég er með þann algenga og leiðinlega málgalla að segja alltaf ''bíddu'' ef ég man ekki eitthvað. Þannig að á sýningardaginn verður þetta svona: (fyrsta atriði, fyrsti mónalogur) ''Anne...it´s me...bíddu...I´m calling from Vie Bíddu ...Vienna..no..bíddu...I´m callin from ...Prague!''

Hahaha í gær þegar ég kom heim af næturlífinu þá var Keda svo í fastarsvefni að ég þurfti að fara bakatil í garðinn og brjóta tvöfalda rúðu til að geta komist inn þar sem ég hafði gleymt lyklunum. Það var frekar skondið þegar hún kom inn í stofu á morgun. Hún hafði semsagt ekki heyrt þegar 2 metra löng rúðan smassaðist og vissi ekkert að ég væri heima. Ég braut rúðuna með ösp sem ég tók upp með rótum úr garðinum hliðiná...einhverveginn verður maður að redda sér. Veit bara ekkert hvað ég á að segja við leiguaðilann. Hmm ... einhverjar uppástungur?

En núna verð ég að fara að tannbusta mig.. það er eins og eitthver rotta hafi skriðið upp í miog nótt og rottnað.

Tala við ykkur seinna meir meir!

Kv Toni Tantra

No comments: