Tuesday, May 23, 2006

Textafötlun!

Vá mánudagurinn fór í að byggja upp upphandlegsvöðvana því ég ýtti og ýtti leikstýrunni útum allt! Nei nei hún á nottla ekkert að fá sérmeðferð bara því hún er með visinn fót eða eitthvað! Er það ekki það sem þetta pakk er að berjast fyrir ; ''engar ýtingar, einga sérmeðferð!''. En ég er nú bara að grínast.

Ég gleymdi alveg að ýta henni en ég fékk samt stærsta hlutverkið sem ég er bæði sáttur og ósattur við þar sem það þýðir ekkert djamm, bara að læra texta! Og svo er þær Dísa og Hlín að koma og þá er nottla djamm. Ég meina þetta er bara vítahringur. Ég vil núna banna öllum vinum og vandamönnum að koma til London næsta 1 og hálfa mánuðinn svona meðan æfingar á sýningunni eru. Svo mega allir koma að sjá sýninguna í enda júní. haha ég á alveg eftir að fokka þessu upp!

No comments: