Sunday, May 07, 2006

Sá hlær best sem síðast grær!

Í gær var sko djammað vel og lengi!

Byrjaði á því að spranga um götur Lundúna að finna mér klæði til að hengja á líkama minn fyrir Jón Gunnars teiti sem átti að eiga sér stað síðar þennan sama dag. Ég vil taka fram að ég er enn með sár eftir frunsuna og var því stanslaus (ómeðvitað) að kroppa í sárið. Svo fór ég í TopMan og þar er BJART! og svo var ég að eitthvað að máta og allir alltaf eitthvað að horfa á mig og ég eitthvað ''uuu fokkk offf!!!'' og hélt bara áfram að skoða og máta og þar eftir götunni. Nei nei alltí einu þar sem ég stend á miðju búðargólfinu, baðaður skæru ljósi frá alltof sterkum kösturum með allra kaupanda augu á mér þá fer LOFTIÐ AÐ LEKA ! ég stend þarna í miðju alheims með fullt fangið af nýustu tísku. Mér verður litið til lofts og ekki næ ég að gera mér grein fyrir því hvaðan lekinn kemur fyrr en mér skyndilega verður ljóst þegar ég snögglega sé spegilmynd mína í einum af þessum ofurvöxnu speglum að leki þessi kemur alls ekki úr þakinu heldur úr æðum mér! Helvítis frunsan og helvítis kropp! Ég hafði s.s. kroppað (ómeðvitað) svo djúpt í sárið að það var farið að fossa blóð út úr því og það var ekkert bara að gerast á þessari stundu því sumt blóðið var þáþegar byrjað að storkna! Og þarna stend ég eins og illagerður þunnur hlutur með fullar hendur af vestrænni menningu BLÆÐANDI TIL DAUÐA! og ekki gat ég hlupið út grennjandi með blóðið útum allt og ekki gat ég fórnar höndum fegna fatabyrgðanna svo ég bara eitthvað ''ha vá flott gólf'' og horfði rottumikið á það þar til ég var staddur inn í fataklefa þar sem ég brotnaði niður og íhugaði sjálfsmorð. Rottuljóta frunsan hefur ákveðið að hrella mig í allra síðasta skipti ..svona rétt í endan. Eiga síðasta leik í baráttu góðs og ills.Gamalmenið sem allir hata og liggur á dánarbeðinu sem breytir erfðarskránni svona á seinustu min og leggur allan arf sinn til Kringlunnar eða eitthvað alíka fokkt!

En svona var þessi amar saga af mér. Annars var partýið hjá Jóni Gunnari foxskemmtilegt en Björg Frænka var rottuógeðsleg og drakk klikk mikið og ældi vélindanu sínu og þar sem klóstið var hliðin á stofunni þá heyrðu allir í henni þegar hún spúði shusi-gubbinu um allt baðið og svo kom hún fram með æluna storknandi í munvikum og sagði ''ojj ég held að einhver hafi ælt í vaskinn'' fór svo aftur inn og ældi.HAHA

En núna veeerð ég að fara að læra.

Kv Toni Tilfinning

No comments: