Monday, May 01, 2006

Fuglaflensudraumurinn

Hérna haha..mig dreymdi í nótt lóds af einhverri steypu um að stelpa í skólanum mínum hefði dáiið um helgina úr fuglaflensu og að hverfið mitt væri núna umkringt af hermönnum og skriðdrekum og að hermenn væru að sækja allar nemendur skólans heim til þeirra og á götunni væri allt í steik.Krakkar að brenna bíla og ræna öllum búðum og löggan og hermenn að berja alla og að sumar löggur á svona hestbaki líka að berja alla og allt þetta að gerast fyrir utan gluggan hjá mér og Kedu og svo að við værum bara að bíða eftir að einhverjir hermenn myndu brjóta upp hurðina hjá okkur og berja okkur líka og henda okkur í þessar rútur sem við værum öll sett í og svo ætti að taka okkur öll á einhvern afvikinn stað þar sem við færum í 2. vikna sóttkví en að það hefði lekið út að þetta væri ekki sóttkví heldur einhver eyja eins og í lost og eins og í Royal Battle myndinni þar sem allir þurfa að drepa hvort annað og sá seinasti á lífi vinnur en áður en okkur var sleppt lausum þá fengum við bakpoka með einhverju dóti í til að nota til að drepa. Keda fékk poka með lásaboga, Ro fékk poka með exi í, Alex fékk poka með skammbyssu , Jake fékk poka með elvörpu og ég ... ég fékk DVD SPILARA! Ég man að þegar við höfðum dregið upp ''vopnin okkar'' þá litum við öll á hvort annað og svo hlupum við inn í frumskóginn sem var á eyjunni. Það seinasta sem ég man í draumnum var að ég var ógeðslega ósáttur og enn ósáttari þegar ég fattaði að high school high myndin ''Bring it On'' var föst í spilarunum. Svo man ég að þegar ég er búinn að ýta á ''eject'' hundrað sinnum þá heyri ég einhvern segja fyrir aftan mig með hæðnisröddu ''ha ha oo dear Antoine... you have to plug it in..ahahahha'' þarna stóð fyrir aftan mig Susan (2. ári í Actor Musician) með Bratz dúkku sem hún beindi að mér. ''HAHA my little Susan. What do you think you´re gona do with that Bratz doll''? sagði ég og stóð hægt upp en hélt enn á DVD spilaranum. ''Well you little sad cunt! its not only a doll but a hand grenade as well (handsprengja), and I only have to bite of the head to activate it!!'' þarna voru mér góð ráð á dýr. Ég man að ég hugsaði ekkert heldur ýtti allt í einu einu sinni enn á ''eject'' takkann sem loks opnaðist á þvílýkum hraða að ''Bring it On'' diskurinn þaut á ógnarhraða í gegnum loftið og beint í enni Susan og inn í heila.

Þarna hrekk ég upp í garðinum heima.. s.s. draumurinn búinn.

Þetta var skrítinn draumur og veit ég ekkert hvað hann þýðir. Ef einhver kann að túlka drauma og þá þennan sérstaklega þá bara að láta vaða í kommentanum !

Kv Toni Tímavel

No comments: