Friday, May 05, 2006

nei meina halló!

Dyggir lesendur vita kannski að ég er kannski ekki heppnasti náungi í geiminum og að ávallt gerist eitthvað fyrir mig rétt fyrir helgi mér til mikils ama og leiðnda sem að lokum rústar fyrir mér skemmtanalífinu þá helgi. Á seinsasta fimmtudag fékk ég massaskrímsli á vörina eða með öðrum orðum viðbjóðslega ljóta frunsu sem í gær ákvað að pakka saman og er farinn.

Í dag er föstudagur.

Í morgun sparkaði ég í sófa og braut á mér tánna.

Engin orð

Takk fyrir og bless.

Toni Týpa

No comments: